25.01.2012 11:24

Verið að landa

G+oðan daginn, það er verið að landa frosnum afurðum hér á Reyðarfirði þessa stundina en við komum til hafnar kl. 08.00 og tóku Tandrabergsmenn strax til starfa og ætla að gefa sér tæpa 12 tíma við þetta. Við náðum að fylla rétt áður en við lögðumst að bryggju. Svo er það Eskifjörðurinn í kvöld og má áætla að sú löndun taki rúmlega 3 tíma þannig að við verðum komnir af stað í nýjan túr um og kringum miðnótt.

Hér er þegar við hittum á Ísleif Ve sem kom með smokkinn til okkar einn dagin.

Þessi ver tekin rétt áðan löndun á fullu.

Hluti af Reyðarfirði, hafnarvogin er fyrir miðri mynd (rauða húsið) og þar fyrir ofan er Grill skálinn.

Guðmundur tekur sér frítúr þar sem hann var að kaupa sér nýtt hús og þarf að hjálpa til við flutningana og kemur Óskar Haralds í staðin.
Verðum í bandi kv Huginsmenn

23.01.2012 18:02

Laumó

Góðan dag, það hefur gengið alveg all þokkalega hjá okkur fyrir austan land aftur lestin full og hálfnaðir með þá fremmri og að öllum líkindum mun hún fyllast að morgni miðvikudags þ.e.a.s. á morgun. Það er annars lítið að frétta hjá okkur nema það kannski að Ísleifur kom með smokk til okkar, það skal tekið fram að smokkurinn þessi er notaður á trollið svo það verði ekki misskilningur með það. Og svo er það laumufarðegin frá Færeyjum hann Klæment sem er stór ránfugl og voru menn sumir hálf smeykir við hann.

En það eru hér tveir Brandarar sem kalla ekki allt ömmu sína þeir Gunni EllaPé og Óskar Freyr sem sáu um að handsama hann.

Hér er restin af vaktinni sem komu sér í felur og reyndu að forðast Gunna meðan hann fór með rándýrið um skipið til að sýna mönnum hann.
Kveðja Huginsmenn


20.01.2012 22:26

Loðnuvertíð

Kvöldið.
Jæja þá er loðnuvertíðin hafin hjá okkur Huginsmönnum. Við vorum komnir á miðin rétt eftir miðjan dag og var kastað akurat á meðan leikurinn var í sjónvarpinu, sáum seinni hálfleik og vorum hund fúllir og margir okkar héldu með Norðmönnum í leik á móti Króatíu þannig að Íslenska liðið héldi heim en svo varð ekki og bíðum við spenntir eftir næsta leik. Svo var híft nú rétt í þessu og kom ágætis afli og er vinnsla að byrja og það skal tekið fram að það er aldeilis blíðan núna og vonandi að hún verði eitthvað áfram.

Það sést á þessum gaurum að þeir hafa allir verið á námskeið hjá Slysavarnarsskólanum Óskar Birgir, Gummi, Gylfi Birgis og Ágúst Gísli allir í vestum.

Gummi og Óskar Birgir að brassa.

Þessir hafa kannski verið sofandi eða mætt illa á námskeiðið, lítið fer fyrir vestum hjá Grím og Kolla.

Gummi vél kíkti aðeins upp á dekk til að athuga hvort ekki væri allt í lagi.
Það er búið að vera heldur rólegt hjá okkur hingað til í þessum túr svo vonandi fer allt á fullt og getum farið að setja eitthvað niður í lestarnar.
Kveðja Huginsmenn

20.01.2012 00:12

Íslandsmið

Komið þið sæl.
Við fórum frá Fuglafirði um miðjan dag í gær og er kolmunnaúthaldinu lokið í bili verður líklegast farið aftur með vorinu. Það er stefnan að vera á íslandsmiðum þ.a.s. loðnumiðum seinni partin í dag eða um það leiti sem leikur Íslands og Slóveníu byrjar en það fer allt eftir veðri og vindum. Það var leiðindar sjólag er við lögðum af stað en það virðist batna eftir því sem norðar dregur. En talandi um landsleikina þá var mikil spenna hér á miðvikudaginn er Ísland vann Noreg og það kom sko allur pakkinn, sumir reittu hár á höfði, aðrir fóru fram í stakkageymslu þar sem þeir gátu ekki horft á þetta, það var blótað og ragnað en þegar leik var lokið voru allir í skíunum og talað um að þetta sé eitt besta landslið sem við höfum átt.

Það færi vel um Óla Hafnarkjaft og félaga í þessum skúr.

Vinir að eilífu sagði Óskar Birgir og tók utan um Gumma Fúsa.

Gústi Gísli er hér að gera sjóklárt er við lögðum í hann í gær.

Fuglafjörður kvaddur en á þessum stað búa um 1700 manns, vinalegu staður.
Kveðja Huginsmenn

18.01.2012 13:11

Stórhöfði hvað

Góðan daginn.
Þa' hefur verið lítið að frétta af okkur síðustu daga lítil sem engin veiði og leiðindar veður. Spáin var ekkert til að hrópa húrra fyrir svo að við fórum í var við Færeyjar í gær og var vindur í nótt og í morgun 35 ms og sló hann oft í 47 til 50 ms, snældurvitlaust veður. Við erum núna staddir í Fuglafirði í vari ,en samt er hér hörku vindur.

Þessi mynd var tekin heima rétt áður en lagt var úr höfn og eru þeir vígreyfir karlarnir Grímur á Felli, Kalli Haralds, Kolli Baader og Albert vítaskytta.

Hittingut aftur á rassgati, eitthvað fór í sundur hjá okkur og var því snarlega reddað.

Erum hér í skjóli af einhveri Færeyskri eynni og var vindur að slá í 47 ms.

þannig að við fórum norðar til Fuglafjarðar þar sem sjólag var betra en samt er hörku vindur.
Við munum nota tíman til að yfirfara troll og aðra hluti meðan við dólum hér og hvað verður gert í framhaldi kemur í ljós.
Kveðja Huginsmenn.

15.01.2012 08:36

Nýtt ár

Góðan daginn og gleðilegt ár öll sömul.
Árið 2011 var flott ár fyrir okkur Huginsmenn, veiðar og vinnsla gengu eins og í sögu enda var aflaverðmæti skipsins gott, bara frábært. Og það er fleira sem spilar inn í, við höfum fengið góða aðstoð frá landi að austan hafa þau Steini hjá Eskju og hans fólk og Tandrabergsmenn séð um landanir þar og gengið vel. Heima í eyjum hefur Vinnslustöðin verið með landanir og er þeim þakkað fyrir og strákarnir í handboltanum sem komu á Þjóðhátíð og hreinsuð upp úr skipinu á nó time. Við strákarnir þökkum henni Ellý á skrifstofunni fyrir góða þjónustu. Þið öll sem hafið aðstoðað okkur í gegnum tíðina hafið góðar þakkir.
En nú er komið nýtt ár og erum við byrjaðir, farið var á gulldeplu og það úthald stóð í sólarhring ekkert að sjá og úthaldið búið. Var græjað fyrir kolmunnaveiðar og erum við á leið á miðin og ættum að vera þar um miðjan dag. En hve fjlótt gekk að skipta yfir þá náðum við ekki að slútta gulldeplunni þannig að við eigum það inni.
En árið hjá okkur byrjaði á því að Slysavarnarskólinn kom til okkar og hélt námskeið í tvo daga með okkur hér um borð sem var flott og fengu þeir okkur til að pæla aðeins öðruvísi í hlutunum.

Áhöfn Hugins Ve 55, við erum 28 fastráðnir um borð og voru allir á námskeiðinu nema Elvar Páll sem hafði ný lokið við endurmenntun í skólanum.

Þórarinn og Hilmar skólastjóri Slysavarnarskólans voru með námskeiðið um borð í Huginn og fóru vel yfir hlutina með okkur og hjálpuðu okkur vel við að rifja upp hin ýmsu handtök og hvernig menn ættu að bregðast við.

Ég veit, við náum í gilsin á afturkrannanum og og húkkum í lappirnar á manninum og drögum hann upp sagði Gunni EP en það var fellt, sá slasaði fékk góða meðhöndlun og komst heil upp á dekk.

Hér fær einn fría ferð úr borðsalnum upp í brú þurfti smá lagni að komast þessa leið til að sjúklingur yrði ekki fyrir hnjaski sem tókst bærilega.
En eins og sagði þá erum við á leið á kolmunnamiðin og fáið vonandi góðar fréttir frá okkur fljótlega.
Takk fyrir allt kveðja Huginsmenn.

    Huginn VE 55

    Flettingar í dag: 124
    Gestir í dag: 63
    Flettingar í gær: 342
    Gestir í gær: 147
    Samtals flettingar: 726790
    Samtals gestir: 278609
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:10:30

    Vafraðu um

    Huginn VE 55

    Farsími:

    412-1112 / 412-1113 / 412-1114

    Um:

    Huginn er fjölveiðiskip sem fiskar bæði í nót og troll, Huginn veiðir Loðnu, Síld, Kolmunna og makríl, aflinn er frystur um borð. Huginn er smíðaður í Chile 2001 er 2392 brt.

    Tenglar