03.05.2012 00:01

Heimkoma

Góðan.
Jæja þá erum við loksins á heimleið og ætlum okkur að vera við bryggju í hádeginu, fimmtudag. Við erum að klára að fylla lestarnar og þá þarf að renna yfir tæki og tól með sápu og önnur hreinsi efni. Það er fínt að komast heim því flestir okkar ef ekki allir eru orðnir sjósprungnir og höfum gott af smá pásu. Verður landað úr skipinu í dag og föstudag og jafnframt sem við þurfum að græja skipið fyrir brottför norður á Akureyri en skipið á að fara í slipp á mánudagskvöld, mála og annað tilfallandi sem gert verður.

Sigurbjörn Árnason er fimmtugur í dag og til hamingju með það og færð góðar kveðjur frá samstarfsmönnum. En Bjössi eins og hann er kallaður hefur verið í fríi frá kolmunnaveiðinni þar sem mikið stendur til á laugardaginn er hann ætlar að halda upp á áfangan eða okkur skilst það á þeim fáu hér um borð sem stunda facebook. En svo bregðast krosstré sem önnur tré og það jafnvel í tvígang, Huginn Ve þarf að sigla norður um miðjan dag á laugardaginn og þar sem hann er með stýrimannsréttindi þarf hann að sigla með. Nema,nema, nema að hann gerir breytingar sem hann tilkynnir á facebook og haldi afmælið á morgun föstudag og allir geta mætt og verið glaðir eða að hann fái Eddu sína til að standa vaktina og hún taki á móti gestum og gangandi á laugardagskvöldið það skiptir mig engu því ég verð heima alla helgina.
Til hamingju með daginn.

Gróa á leiti hvíslaði því í eyra mitt að þessi maður hann Palli okkar væri að hætta hér um borð. Sögur segja að allt sé frágengið og hann taki sitt hafurtask er við komum í höfn og búið sé að ráða annan. En er ritari síðunnar gekk á Palla til að fá útskýringar á þessum sögum sagði hann að þetta væri algjör uppspuni og bað um leiðréttingu á þessum söguburði. Palli sagðist eiga fleiri góð ár eftir heldur en félagi hans hann Grímur. Svo ef það er einhver sem ásækist starfið hans Palla þarf sá hinn sami að berjast um það.

Hér erum við að kveðja færeysku lögsöguna, ég bara veit ekki eða man hvort þetta er sólarupprás eða sólsetur, skiptir ekki máli við verðum í landi um hádegisbilið.
Kveðja Huginsmenn

01.05.2012 03:28

En og aftur afmæli

Góðan dag.
Jæja þetta er allt á réttri leið hjá köllum, við náðum að fylla afturlestina í gær og nota bene við byrjuðum strax á þeirri fremmri og stefnum á að fylla hana í vikunni. Við höfum einnig prófað að hausskera kolmunnan á einni vélinni og fengið nokkur tæki niður í frystilest.

Það er furðulegt með þessa bræður Óskar og Kalla Haraldssyni, Kalli átti afmæli um daginn og þá kom Gylfi Viðar færandi hendi og gaf honum afmælisgjöf. Og svo var það í gær að Óskar átti afmæli og viti menn kom ekki skipperinn með þessa forláta köku sem hann hafði fengið á tombólu er við vorum síðast í Færeyjum. Ég hef átt nokkur afmælin og sum nokkuð stór en aldrei hefur Gylfi komið með gjöf handa mér.Óskar til hamingju með daginn og þið sem eruð í landi getið sent honum email á oskar76hjasimnet.is.

Það var um daginn þegar lítið var um að vera að við brugðum okkur í feluleik voðalega gaman og var lengi verið að finna hann Ágúst Gíslaen Grímur á Felli er en ófundinn.

Við strákarnir og þá sérstaklega vélstjórarnir viljum koma kveðjum og þökkum til gæjana á Aðalsteinni en þeir redduðu okkur um varahluti í pökkunarvélinna, iðntölvu og þannig dóti. Takk fyrir.

Núna í morgun er við vorum að hífa þá kom agnarsmár bíbí trítlandi á móti okkur uppi á dekki og var hann voða þrekaður að sjá. Gaui Helga tók hann niður og gaf honum vatn að drekka til að hressan aðeins við. Hvaða fugl þetta er vitum við ekki enda engir fuglasérfræðingar hér á ferð.
Það er líka þessi rjómablíða á miðunum og fóru strákarnir upp á dekk í sólbað en ég nenti ekki upp með þeim til að taka myndir vegna þess að ég er í fýlu út í þá og ætla að vera það eitthvað fram eftir degi.
Hafið það gott á frídegi verkamanna, kveðja Huginsmenn

28.04.2012 09:45

Hvað er ekki að gerast.

Góðan daginn.
Það hefur mikið gengið á hjá okkur síðasta sólarhring, næstum allt sem getur farið úrskeiðis hefur gert það. Myndavélin var biluð, pokinn fór yfir kjamma á tromlunni og náði að festa rækilega, höfuðlínan náði að flækjast hjá okkur í hífingu og svo klikkaði pökkunarlínan, alveg einstakt líf.

Stebbi stóð í ströngu, það er búið að vera svoleiðis hjá vélstjórunum þeim Óskari Haralds, Hjalta Jó og Magga Valgeirs. Þeir þurftu að rífa myndavélina í tætlur til að finna meinsemdina og púsla henni saman aftur og er hún að virka vel eftir þá yfirreið. Og síðan fór pökkunarkerfið að angra þá strax í framhaldinu af myndarvélaviðgerðinni og eru að finna bilunina þar.

Á meðan vélstjórarnir lágu yfir bókum um pökkunarkerfið þá náðum við að slá úr umgang af tækjum handvirkt, það gekk en mikil vinna, hér eru þeir Guðjón Helga og Ágúst Gísli að setja kassa yfir afurðina.

Og núna í morgunsárið kl. 09.26 voru peyjarnir að hífa og hér er pokinn að koma að síðu.

Grétar og Elvar Páll milliblakkarstjóri búnir að húkka í og blökkin komin á fullt.

Og á leggjaranum er Ívar Gunn vaktarskiptir(en hann skipti um vakt er Júlli fór heim) sem kemur pokanum þannig fyrir að það sé hægt að reima hann við belginn.

En kannski er bót í máli hjá okkur að ekki hefur verið um bilanir í eldhúsinu þannig að við fáum okkar góða mat á réttum tima og réttum stað.
Það er að frétta af ferðalaginu endalausa hjá Júlla Hallgríms að hann komst til eyja í gær á bátnum mínum frá Landeyjarhöfn og er nú á leið til Reykjavíkur aftur ævintýri fyrir hann.
Ekki meir að sinni kveðja Huginsmenn

26.04.2012 11:21

Það var mikið

Það var mikið að við komum Júlla til Þórshafnar en löndun var búin eitthvað um hálf eitt í nótt. Þá var Júlli ekki en búin að ná sér í far í höfuðstaðinn sem hann ætlaði að gista þannig að ákveðið var að koma við fyrir utan Þórshafnarhöfn og skutla honum yfir á Mobbanum.

Hér erum við rétt við skipshlið og Júlli er eitt stórt bros með skipstjóran á Mobbanum sér við hlið. En takið eftir að ekki var hlustað á hásetan þegar að hann benti á að sumir væru ekki með vesti.

Síðan fór að pusa yfir Mobban og þurfti skipstjórinn að skipta um sæti við farþegan til að skýla honum fyrir veðri og vindum og sjóbaði, enda sést á svip farþegans að honum er ekki lengur skemmt. En það sem verra er að myndavélin virðist ekki hafa þolað þetta volk og neitaði að starfa er þriðja myndin átti að takast. Ef vélstjórar ná ekki að gera við vélinna verður eigandinn hennar (Gunni EllaPé) að fjárfesta í nýrri og það sem fyrst. En aðalmálið er að Júlli er komin til Þórshafnar og tekur flugið heim á morgun og að við erum lagðir af stað á miðin og verðum þar í kvöld.
Kveðja Huginsmenn

25.04.2012 18:18

Matarveisla

Sæl aftur en nú er það matarboðið í boði Palla og Gríms. Það var ákveðið að hafa matinn snemma í dag til að áhöfnin gæti horft á leik Real Madrid og Bayern Munchen saman og erum viðað því þessa stundina. Og það er líka tilefni að nota þetta sem kveðjustund því Júlli er að fara til Íslands og verðum við því einum færri í næsta túr.

Þeir félagar eru að sneiða niður svínarif sem eru beinlaus( þetta er samt kallað rif) og leggja í kryddlög.

Þá er það forrétturinn, humar í hvítlauksolíu.

Skipstjórinn heimtaði að fá að taka þetta út hjá strákunum og gaf leyfi fyrir framhaldið.

Grímur gaf sér tíma í grindina og spekið, gott að hafa það við hendina

Kokkunum var þakkað fyrir matinn og voru þeir tolleraðir og var byrjað á Grím

síðan kom Palli og fundu menn að þeir eru sterkir því Palli lenti í loftinu.

Ánægðir peyjar hér á ferð, saddir og sælir og eru að hvílast meðan leikurinn er því haldið verður á sjó eftir tvo til þrjá tíma.
Kveðja Huginsmenn

25.04.2012 12:32

Leiðangur

Góðan daginn.
Við vorum komnir rétt fyrir miðnótt í Fuglafjörðinn og var strax farið að dæla olíu um borð sem duga skal fyrir næsta túr. Eftir að olían var komin þá var skipt um bryggju og gert klárt fyrir frystilöndun sem hófst kl. 07.00 að okkar tíma. Það voru tveir sem þurftu að vakna snemma til að versla í kostinn fyrir skipið en Palli kokkur ákvað það að Grímur á Felli fengi að ráða hvað yrði í matinn í næsta túr. Eyvind reksrarstjóri Heildverslunar Haraldsen mætti tímalega til að sækja þá félaga en það skal nefnt hér að Eyvind á ættir sýnar að rekja til eyja en afi hans og amma Eyvind og Jórunn Torshamar bjuggu í eyjum.

Hér er gengið Grímur, Eyvind og Palli við fótboltavöllinn í Götu en þeir eru að skipta um gervigras á vellinum. Svo var haldið í heildverslunnina.

Hér eru strákarnir komnir í kælinn og er aðeins meiri áhugi hjá Grímsa nú en í niðursuðuvörunum og býður hann spenntur eftir að komast í frystirinn þar sem aðallinn er geymdur.

Loksins segir Grímur og menn höfðu ekki undan að taka vöru sem hann benti á, hnakkasteik, kótelettur, nautafillet og meira til.

Og í restina var haldið inn í Hjall, það var ævintýri fyrir þá gömlu skerpukjötið hangandi, rengi og spikið geðveikt gott sögðu þeir með slefið í munnvikunum

Eyvind að skera niður spekið, fitubrákin lak af spekinu.

Og þá er verið að smakka aftur og æfa sig að skera niður eins og innfæddur og verður að segjast eins og er að þetta bragðast virkilega vel saman.

Þá er verið að gera upp Eyvind að finna til verðin og Palli að láta hann vit hvert ætti að senda reikninginn á Kirkjuveg 23 Palla útgerðarstjóra.

Er við vorum á fótboltavellinum í Götu þá sáum við minnismerki sem við höldum að sé frá Gísla Magg leikfimiskennara en hann þjálfaði knattspyrnulið Götu til margra ára. Götu er vinnabær Vestmannaeyja og við stoltir af.

24.04.2012 18:07

Á leiðinni

Hæ, við erum búnir að fylla frystilestarnar og á leið til hafnar. Áætlað er að vera í Færeyjum rétt fyrir miðnótt, taka skal olíu og síðan í löndun snemma í fyrramálið. Miðað við tölur sem vaktformaðurinn hann Guðjón gaf upp þá eru 26.000 kassar í lestum skipsins og verða Færeyingarnir þá búnir annað kvöld með að landa. Við vorum búnir að frysta fyrir hádegi og var seinniparturinn notaður við þrif í starfsmannaaðstöðu og vinnsludekki.

Nordborgin var í löndun í síðustu viku, myndarskip sem þeir eiga Færeyingarnir.

Hjalti Hávarðar að segja Ágúst Gísla hvernig var að koma til Færeyja hér í den.

Tveir sprækir á kvöldgöngu, verður ekki hægt núna í þessari löndun frekar síðdegisganga.

Síðasta vaktin hjá Júlla en hann er að fara heima og svo ætlar hann sér í eitthvað ferðalag. Það er bara flogið tvisvar í viku til Færeyja á ma´nudögum og föstudögum svo hann þarf að finna sér gistingu í tvær nætur. Ef einhver veit um svoleiðis væri gott ef sá hinn sami hefði samband við Júlla.
Held að stefnan sé að taka einn túr í viðbót og verður honum þá landað heima í eyjum, vonandi að það gangi vel eins og hingað til.
Kveðja Huginsmenn

22.04.2012 20:05

Ofboðslega gott

Góða kvöldið, djö er maður saddur eftir frábæra máltíð í kvöld, purusteik með öllu þ.m.t fjólublátt salat.

Hér er snillingurinn kl. 1600 að byrja að úrbeina svínslærið og tók það fljót af, höndleraði svo Palli það þannig að út úr þessu kom líka þessi flotta máltíð, dásamlegt.

Key Hey er í klíkunni hjá skippernum. Gylfi Viðar gaf honum afmælisgjöf og voru margir nytsamlegir hlutir í pakkanum. Hann fær alltaf afmælisgjöf frá Gylfa Viðari.

Kalli er sáttur við gjöfina það er eina helst að maður mundi öfunda hann af lakkríspípunum og bjórnum.

Það er vesen á Mummatrollinu eitthvað er snúið, er búið að reyna að lagfæra það en með litlum árangri. En á mynd sést að sumir eru búnir að gleyma slysavarnarnámskeiðinu sem við fórum á í vetur. Takið eftir að Ómar er að benda á hjálminn.
En við eru búnir að fylla afturlestina gerðum það reyndar í gærkveldi og erum langt komnir með lag tvö í þeirri fremmri. Fínasti gangur og reiknað með að vera í höfn á þriðjudag.
Kveðja Huginsmenn

21.04.2012 07:44

Key Hey

Key Hey (Karl Haraldsson) á afmæli í dag er gæinn 28 ára og eldist hratt. Það verður því en ein veislan sem Palli Kokkur mun henda á borð fyrir okkur og er það skiljanlegt hjá þeim Gylfa Viðari og Hjalta Jó að fresta átakinu sem þeir eru að standa fyrir. Veiðar og vinnsla er bara eins og það á að vera, gengur bara fínt. Það var smá kaldafýla hér í gær en er orðið fínt í sjóinn núna.

Key Hey er nokkrum árum yngri myndinni en hann er í dag, hér er hann ekki farinn að skerða hár á höfði og ekki fengið hár í andlit.Við samstarfsmenn óskum honum til hamingju með daginn .

Misskilningur, sumir héldu að þegar þeir væru komnir á vissan aldur þá væri allt frítt. Við stóðum Grím kallinn að því að hann stóð á öndinni við gosdrykkju og er langt komið á goslagerinn okkar. En Grímur minn það er engin afsláttur hjá starfsmannafélagi Munninn,

Hér er verið að skipuleggja næsta hífopp en það eru ófáir fundirnir sem eru haldnir hér um borð. Ómar Steins, Hjalti Jó og Vakti Guðjón Helgasson

Kveðja Huginsmenn


19.04.2012 05:53

Sjómaður Íslands

Sjómaður Íslands orðinn eldriborgari, Grímur Magnússon frá Felli er 67 ára í dag og því löggildur. Nú þarf hann aðeins að borga eina einingu í Herjólf er hann skreppur upp í bústað, hann þarf ekki lengur að borga í dalinn á þjóðhátíð og síðast en ekki síst þá fær Grímur á Fell frí í sund og það ætlar hann sér að nota þannig að sundlaugarverðir verða fljót pirraðir á honum.

Hér er Grímur á Felli  á góðri stundu með eiginkonu sinni Maríu.

Grímur hefur verið fastur maður í knattspyrnuliði Huginsmanna, leikinn og mjög útsjónasamur gaur.

Það verður að segjast að ekki er langt í brosið hjá kallinu

Grímur baader er hér við vélarnar.

Kallinn er mikið fyrir að sóla sig og sýna þennan stælta skrokk.
Heyrst hefur að Grímur ætli sér að sækja eftir formannsstöðu í eldriborgarafélaginu og bola Gísla Jónassyni frá þegar hann hættir á sjónum en eins og Grímur segir sjálfur þá á hann sjö ár eftir á sjónum, fjögur góð og þrjú aðeins síðri.
Grímur Magnússon frá Felli til hamingju með daginn og máttu eiga góðar stundir
Kveðja frá samstarfsmönnum.

18.04.2012 21:36

Þeir eru snillingar

Þeir eru snillingar frændur okkar Færeyingarnir, einu snillingarnir á ÍSLANDI eru sjálfstæðismenn eins og segir í áramótaskaupinu. Þeir grafa inní fjallið til að ná í uppfyllingarefni fyrir bryggjustæði og nota síðan holuna sem frystigeymslu, kæligeymslu og tvær þurar geymslur.Snillingar en kannski að þeir fái fjarmagn frá dönum sem hafa yfirráð yfir eyjunum að hluta til. Við ættum kannski að afsala okkur sjálfstæðinu og hafa tvo eð þrjá þingmenn sem virkilega starfa fyrir landið

Munninn í miðju fjalli og eru Hjalti og Óskar eins og tittir í munnanum.

Hér er frystigeymslan

Common heil 8000 þúsund tonn geymd hér

Þrír hellar sem eru undir frystigeymslur

Ein kæligeymsla og tvær geymslur, þeir eru að bæla að grafa lengra inn til að fá meira uppfyllingarefni fyrir bryggjustæði eða aðra hlut isem þarf að fylla upp í.
Eins og segir Færeyingar eru snillingar en við eigum örfáa.
Kveðja Huginsmenn.
Ps. Við eigum myndir frá hinum ýmsu bæjarstðum frá Færyjum sem Ómar Steinsson tók á myndavélina hans Gauja Helga og þær koma um leið og þær koma inn á myndaalbúm síðunnar.

17.04.2012 12:40

Í vari undir Miklabergi

Góðan og blessaðan daginn.
Við liggjum nú undir hömrum Sandeyjar í Færeyjum en það berg heitir Miklaberg hátt í kílómeter að hæð og er það mikilfengin sjón að sjá það. En að sögn Óskars Haralds sem er mikil áhugamaður um örnefni og þá sérstaklega í eyjum og í Færeyjum er þetta berg oft notað af færeyingum við teygjustökk og þá sérstaklega ef menn eru hundasjúkir, eftir stökkið eru menn orðnir frískir og færir í flestan sjó.
En að veiðum og vinnslu þá er ekkert hægt að setja á veiðiskapinn en vinnslan tafðist aðeins hjá okkur er armur stór og mikill í pökkunarvélinni brotnaði þannig að afköstin duttu aðeins niður er viðgerð fór fram. Við ætlum okkur að vera í landi í Fuglafirði á morgun en vinir okkar ætla sér að landa frosnum afurðum og geyma í frystigeymslunni sem er ínni í fjalli en myndir af þessari frystigeymslu og fróðleikur um hana kemur á morgun eða hinn.

Hér sjáið þið Miklabergið ógurlega en Ómar stýrimaður þurfti að sigla dágóðan spöl frá því svo hægt væri að mynda hluta af því

Hér er örnefnafræðingurinn Óskar Haralds að fræða menn um hin ýmsu örnefni sem eru á vestur hlið Sandeyjar. Óskar segir að hann hafi alla sína visku um örnefni frá Haraldi föður sínum og Ólafi Týr örnefnafræðing, segist oft glugga í örnefnabókina sem Óli gaf út, algjör gullmoli segir Óskar.

Það hefur ýmislegt verið að gerast hér um borð t.d. kom færeyska landhelgisgæslan í heimsókn. Komu þeir þrír hingað um borð og fylgdust með hífoppi og skoðuðu skipið allt á léttu nótunum. Þeir sem voru á vakt voru svo uppteknir að þeir gleymdu að ná í myndavélina og smella nokkrum myndum af félogunum, kemur næst.

Uppáhalds maturinn hans Guðmundar Inga en því miður fyrir hann þá er hann ekki hér um borð en Palli á eflaust eftir að skella svona rétt á borð er Ingi verður með okkur.
Fréttir á morgun eða hinn frá Færeyjum
Kveðja Huginsmenn

13.04.2012 13:26

Fyrsta hol

Sæl verið þið öll.
Við erum búnir að taka fyrsta holið, vorum komnir á miðin rétt rúmlega sex og trollið komið í hafið hálftíma seinna. Klukkan 09.34 nákvæmlega var híft  og var þetta alveg fínasti afli sem mun duga okkur klárlega í sólarhrings vinnslu og kannski gott betur. Það er alveg glimmrandi gott veður hér, góður hiti með smá andvara svo það eru fínar aðstæður til kolmunnaveiða.

Hér er stjórnborðshlerinn að koma upp.

Peyjarnir að gera sig kláran til að húkka hlerum úr.

Hérna liggur pokinn aftur af skipinu, reiming að koma á dekkið.

Pokinn komin í milliblökkina og dæling að hefjast og aflinn streymir niður í kælilestarnar.

Og síðast en ekki síst þá er komin áskorun frá þeim Hjalta Jó og Gylfa Viðari um að mannskapur fari nú að hreyfa sig að einhverju viti og hvetja þeir aðra hér um borð að hreyfa sig í 45 mínútur á degi hverjum í líkamsræktarsalnum og geta jafnvel skellt sér í gufu á eftir ef þeir nenna því.

Kveðja Huginsmenn

12.04.2012 11:20

40 tímar

Góðan daginn.
Við komum til heimahafnar Vestmannaeyja á þriðjudagskvöld með fullar frystilestar. Löndunargengið byrjaði eldsnemma í löndun og næapu þeir að klára skipið um fimmleytið í gær og gátum við því lagt úr höfn fyrir mat hjá Palla Grétars. Það er um 40 tíma stím á kolmunnamiðin svo að við höfum smá tíma til að yfirfara trollin og tækin á vinnsludekki. Við erum með auka umgang af pappa um borð þannig að við getum landað næst í styðstu höfn sem er samkvæmt kortunum Þórshöfn í Færeyjum en það gæti breyst.

Gylfi Viðar að reikna út leiðina á miðin, nei hann er að skoða eyjafréttir.is.

Við vorum með afurð í tækjunum er við komum í land og mættu við strákarnir í gærmorgun til að slá úr þeim. Nafnarnir Óskar Haralds, Óskar Birgir og Óskar Freyr. En strákurinn í miðjunni hann Óskar Birgir er komin í langþráð frí enda sést á svipnum á honum að hann er löngu sjóspunginn.

Ómar Steins, Hjalti Jó og Guðjón Helga að fá sér snarl milli mála.
Vonandi einhverjar fiskifréttir á morgun
Kveðja Huginsmenn.

09.04.2012 12:40

Hamingja

Dagurinn í gær var eintóm hamingja, frábær matur í bæði mál, pönnslur með sultu og rjóma í þrjúkaffi, dýrindis kaffiborð í kvöldkaffinu og svo fengum við næstum því fllorðins páskaegg eða númer 4 og hefur stækkað um tvo heila. Ef svo heldur áfram þá er öruggt að við ætlum allir að vera um borð eftir 6 ár þá verður páskaeggið orðið stórt. Annars er misjafnt með þessi páskaegg en það er nú þannig að sumir koma með auka að heiman en okkur skildist á Gylfa Viðari að hún Sólrún hafi gefið honum eitt sæmilega stórt egg. En við strákarnir erum glöggir menn því það var í fréttum að súkkulaðiát væri grennandi svo að okkur þætti vænt um að þær Drífa og Mæja mundu hugsa svona vel um menninna sína þá Gunna EPé og Grím á Felli, ekki að þeir séu feitir heldur mætti segja að þeir væru þéttir um sig miðjan.

Hér er verið að útdeila eggjum, einstök gleði hér á ferð.

Júlli á störfum í afturlestinni, vel raðað hjá karlinum.

Það má alveg gefa sér það hver tók þessa mynd þeir eru heppnir Kalli og Elvar að komast á myndina með Gunna.

Þau eru rosalega lengi að lyfta sér tækin, verður að setja auka kraft á glussan gólar Grímur.

Þetta er vaktformaður þessara drengja hér að ofan Viðar Hjálmars og má með sanni segja að mikið sé lagt á þennan dreng sem öllum vill vel að stjórna þessu liði,
Veiðar og vinnsla hefur gengið flott og erum við hálfnaðir með fremmri frystilest og gott betur. Fínasta veður búið að vera, smá kaldi í gærkveldi og aftur gott í nóttt og í dag.
Kveðja Huginsmenn.

Huginn VE 55

Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 177
Gestir í gær: 84
Samtals flettingar: 760940
Samtals gestir: 293320
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:04:05

Vafraðu um

Huginn VE 55

Farsími:

412-1112 / 412-1113 / 412-1114

Um:

Huginn er fjölveiðiskip sem fiskar bæði í nót og troll, Huginn veiðir Loðnu, Síld, Kolmunna og makríl, aflinn er frystur um borð. Huginn er smíðaður í Chile 2001 er 2392 brt.

Tenglar